[english]
Gönguvænar borgir eru mikilvægur þáttur fyrir sjálfbæran og heilbrigðan lífsstíl. Þar skiptir miklu máli að hægt sé að nálgast fjölbreytilega grunnþjónustu með vistvænum samgöngumátum á borð við göngu, hjólreiðar of almenningssamgöngur.
Í þessari gagnasögu lítum við á þær þjónustur sem að eru í göngufæri á Höfuðborgarsvæðinu, þ.e. Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og Mosfellsbæ.
Kortið hér að neðan sýnir fjölbreytni þjónustu í 15 mínutna göngufæri í á höfuðborgarsvæðinu. Þeim dekkri sem að kortið er því fleiri tegundir þjónustu eru aðgengilegar.
Útdtráttur
Göngufæri og hvað skuli í því samhengi telja til grunnþjónustu má skilgreina á margan máta [⛓️💥, ⛓️💥, ⛓️💥]. Í þesssari gagnasögu lítum við til grunn- og leiksóla, heilsugæslustöðva, dagvöru- og lyfjaverslana, menningarstarfssemi og síðast en ekki síst sundlauga. Við byggjum á gögnum frá frá Byggðastofnun, Ferðamálastofu og Heilsuveru.
Við deilum höfuðborgarsvæðinum upp í net af sexhyrninglaga svæðum og reiknum út hversu margar gerðir þjónustu eru í 15 mínútna göngufæri innan hvers sexhyrnings.
Af kortinu hér að ofan má sjá að allnokkur rótgróin hverfi hafa 100% þjónstustig. Í Reykjavík má nefna Vesturbæ, Miðbæinn, Teigana og Rofabæ. Valhúsahæðin á Seltjarnarnesi, fær einnig fullt hús stiga, sem og Miðbær Mosfellsbæjar, Hambraborgin og austurhluti Kársness í Kópavogi, Miðbær Garðabæjar og Vestur- og Suðurbærinn í Hafnarfirði.
Á hinum enda skalans má finna sambland af grónum of nýjum hverfum með 10-30% þjónustustig. Þar má nefna Staði, Hamra, Norðlingaholt og Skerjafjörð í Reykjavík, Byggðir og Helgafellshverfi í Mosfellsbæ, Arnarnesið í Garðabæ og suðausturhluta Ásvalla í Hafnarfirði. Þau svæði sem hafa þjónustustig núll eru að megninu til iðnaðarsvæði en þar má einnig telja ystu hluta Arnarness og Álftaness.
Leikskólar og grunnskólar eru þær gerðir þjónustu sem eru hvað víðast í 15 mínútna göngufæri. Þær eru hvor um sig aðgengilegar frá 84% og 76% sexhyrninga sem þekja byggð ból á svæðinu. Dagvöruverslanir eru aðgengilegar frá 59% sexhyrninga og heilsugæsustöðvar frá 35%.
Jafnvel þótt að göngufæri sé flókið fyrirbæri með marga þætti sem hafa ber í huga þá vonum við að þessi gagnasaga sé gott innlegg in í umræðuna um þvð hvernig megi auka sjálfbærni á höfuðborgarsvæðinu.
Custom urban data analysis
This story is based on an analysis of one or more urban data-sets.
Contact us for price and availability of a custom urban data analysis.
Skýrsla
Það sem eftir er af þessari færsly köfum við aðeins dýpra í gögnin, aðferðafræðina og niðurstöðurnar.
Gögnin
Við vinnslu þessarrar sögu byggðum við á opnum landfræðigögnum frá Byggðastofnun, Ferðamálastofu og Heilsuveru. Frá Byggðastofnun fengum við lista yfir grunnskóla, leikskóla, dagvöruverslanir, lyfjaverslanir og sundlaugar. Frá Ferðamálastofu fengum við lista yfir menningarstafsemi (söfn, leikhús, setur og menningarhús). Frá Heilsuveru fengum við lista yfir heilsugæslustöðvar.
Open Street Map var notað til þess að reikna gönguleiðir eftir götukerfinu og til þess að fá heiti hverfa.
Aðferðafræði
Eftir að hafa rennt í gegnum þau gögn sem voru til staðar völdum við sjö flokka til þess að taka með í reikninginn. Þar af voru þrír sem við skilgreindum sem forgangsþjónustur og gáfum þeim 20% vægi hverjum:
- Grunnskólar
- Heilsugæslustöðvar
- Dagvöruverslanir
Hinir fjórir flokkarnir fengu 10% vægi hver:
- Leikskólar
- Lyfjaverslanir
- Sundlaugar
- Menningarstarfsemi
Við notuðum OSMNx pakkan til þess að reikna 15 mínútna “vatnasvið” (catchment area) í kringum hverja staðsetningu þar sem þjónustu var að finna. Það er að segja allt það svæði sem hægt er að nálgast á innan við 15 mínútna göngu. Myndirnar hér að neðan sýna vatnasvið sjö grunnskóla í Grafarvogi annars vegar og Heilsugæslunnar í Grafarvogi hins vegar.


Því næst bjuggum við til sexhyrningslaga bakgrunnsnet fyrir allt Höfuðborgarsvæðið. Þar þekjum við svæðið með sexhyrningum sem eru u.þ.b. 300 metrar í þvermál. Við vörpuðum vatnasviðum allraþjónustuflokka á þetta bakgrunnsnet og reiknuðum út þjónustustig. Þ.e. ef að sexhyrningur og vatnasvið einhverrar þjónustuflokks skarast þá segjum við að þjónustuflokkurinn sé aðgengilegur úr þeim sexhyrningi og þjónustustig hans hækkar um vægi þess þjónustuflokks.
Myndin hér að neðan sýnir aftur vatnasvið Heilsugæslunnar í Grafarvogi og dæmi um tvo sexhyrninga. Vinstri sexhyrningurinn og vatnasviðið skarast ekki og vægi heilsugæstu í þjónustustigi sexhyrningsins er því núll. Hægri sexhyrningurinn og vatnasviðið skarast hins vegar og vægi heilsugæslu í þjónustustigi sexhyrningsins er því 20 prósentustig.

Myndirnar hér að neðan sýna tvö skjáskot úr kerfinu þar sem að allir þjónustuþættir hafa verið teknir með í myndina.
Annars vegar er sexhyrningur úr Flatahverfinu sem skarast vanasvið grunnskóla, leikskóla, heilsugæslu, dagvöruverslunar og lyfjaverslunar. Þjónustustig þess sexhyrnings reiknast því sem 20% + 10% + 20% + 20% + 10% = 80%.

Hins vegar vegar er sexhyrningur úr Hamrahverfinu sem skarast einungis vatnasvið grunnskóla og leikskóla. Þjóunstustig þess sexhyrnings reiknast því 20% + 10% = 30%.

Niðurstöður
Í síðasta kafla þessarar færslu lítum við á tölulegar upplýsingar úr greiningu okkar og ræðum aðeins þær niðurstöður.
Þjónustuflokkar
Taflan hér að neðan sýnir fjölda staðsetninga úr hverjum þjónustuflokki, heildarflatarmál vatnasviðs þeirra, fjölda sexhyrninga sem að vatnasviðið spannar og þann fjölda sem hlutfall af fjölda sexhyrninga sem spanna öll byggð svæði á Höfuðborgarsvæðinu. Hafa ber í huga að þetta hlutfall sýnir hlutfall af byggðum svæðum en ekki hlutfall íbúafjölda þar sem að þéttleiki byggðar er ekki tekinn með í reikninginn.
| Staðsetningar | Flatarmál (km2) | Sexhyrningar | Þekja | |
| Grunnskólar | 84 | 80,1 | 1.667 | 76% |
| Leikskólar | 164 | 90,8 | 1.846 | 84% |
| Heilsugæslustöðvar | 19 | 32,8 | 766 | 35% |
| Dagvöruverslanir | 78 | 63,4 | 1.298 | 59% |
| Lyfjaverslanir | 45 | 52,2 | 1.116 | 51% |
| Sundlaugar | 18 | 31,9 | 752 | 34% |
| Menningarstarfsemi | 42 | 29,4 | 646 | 30% |
Ef við lítum á forgangs þjónustuflokkana þá spanna grunnskólar stærstan hluta sexhyrninga (76%), þar næst koma dagvöruverslanir (59%) og heilsugæslustöðvar rekja lestina (35%).
Aðgengi að grunnskólum er nokkuð gott þergar litið er til þess að sexhyrningarnir ná til alls byggðs lands og einhver hluti þess er einungis atvinnu og iðnaðarsvæði.
Hlutfall svæða þar sem að dagvöruverslun er í göngufæri virðis frekar í lægri kantinum en ef til vill ekki óeðlilegt í samfélagi þar sem að einkabíllinn ræður ríkjum og 75% íbúa notar þann ferðamáta til og frá vinnu [Ferðavenjukönnun 2022]. Það verður líka að taka tillit til þess að hlutfallið tekur ekki þéttleika byggðar með í reikninginn og ekki er hægt að túlka tölurnar sem hlutfall íbúa í göngufæri við dagvöruverslun. Í ferðavenjukönnuninni hér að ofan kom fram að 74% þátttakenda töldu sig búa í ásættanlegri göngufjarlægð frá matvöruverslun.
Hlutfall svæða sem hægt er að nálgast heilsugæslu í göngufæri er talsvert lágt og endurspeglar kerfið á Íslandi þar sem að rekstur stöðvanna er að mestu leyti í tiltölulega stórum einingum.
Gögnin
Þegar unnið er með opin gögn, hvort sem það er frá hinu opinbera eða öðrum aðilum, þá er mikilvægt að hafa í huga þær forsendur sem liggja að baki birtingu gagnanna og þeirra varnagla sem gætu átt við.
Í þessu samhengi viljum við benda á tvo varnagla sem báðir varða misræmi milli tilgangs þeirra stofnanna sem að gögnin koma frá og tilgangsins að baki þessarar færslu. Hver opinber stofnun hefur sinn vel skilgreinda tilgang og hagar sinni gagnasöfnun eftir honum. Þó svo að gögnin þeirra nýtist vel í þá vinnu sem liggur að baki þessum pistli þá verður að geta þesa að gagnaöflunin ekki gerð með þennan pistil í huga og því ekki endilega tryggt að gögnin henti fullkomlega.
Hlutverk Byggðastofnunar er að efla og jafna byggð og atvinnulíf um allt land og því ekki endilega sjálfgefið að þeirra gaganasöfnun nýtist til þess að bera saman einstaka hverfi í höfuðborginni. Eins er hlutverk Ferðamálastofu að fygjast með þróun ferðaþjónustu og ekki óeðlilegt að þeirra gagnaöflun yfir menningarstarfsemi leggi meiri áherslu á þá strafsemi sem höfðar til ferðamanna umfram þá starfsemi sem að höfðar eingöngu til heimafólks.
Þess ber að geta að þetta eru einungis varnaglar sem hafa skal í huga við meðhöndlun opinna ganga almennt. Ekkert kom fram í gangavinnslunni sem bendir til þess að gögnin séu ekki við hæfi til þess að gefa góða mynd af þjónustustigi mismunandi hverfa.
Við köfuðum ekki djúpt í það hversu fersk eða tæmandi gögnin eru en á yfirborðinu líta niðurstöðurnar traustvekjandi út. Það má þó finna einstaka dæmi þar sem að þjónustueiningar vantar. Til dæmis eru sumir grunnskólar með starfstöðvar á fleiri en einum stað en í gögnunum er einungis aðalstaðstetningin á kortinu (sjá t.d. Kelduskóla sem útibú Víkurskóla í Grafarvogi). Nýjustu sundlaugar eru ekki allar í gögnunum (t.d. Dalslaug í Úlfarsárdal). Þar að auki vantar sumar dagvöruverslanir sem ekki tilheyra stóru keðjunum (t.d. OK Market í Hlíðarfæti).
Þó að þessir gangapunktar séu ólíklegir til þess að breyta aðal niðurstöðum þessarar greiningar, þá gætu þeir haft áhrif á þjóunustustig einstaka sexhyrninga. Við lítum á það sem framtíðarverkefni að taka á þessu misræmi með því að bæta við fleiri gagnasöfnum s.s. Open Street Map.
Custom urban data analysis
This story is based on an analysis of one or more urban data-sets.
Contact us for price and availability of a custom urban data analysis.
